Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 22. febrúar 2020 18:02
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Aron Bjarna í sigurliði - Hólmar lék allan leikinn í jafntefli
Hólmar Örn er í toppbaráttu í Búlgaríu með Levski Sofia.
Hólmar Örn er í toppbaráttu í Búlgaríu með Levski Sofia.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Þeir Theódór Elmar Bjarnason, Hólmar Örn Eyjólfsson og Aron Bjarnason voru allir í eldlínunni með sínum liðum í dag.

Kaposvari Rakocz 0-1 Ujpest
Aron Bjarnason var ekki í byrjunarliði Ujpest í Ungverjalandi í dag þegar liðið heimsótti Kaposvari Rakocz. Ujpest hafði þar betur 0-1, eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu á 6. mínútu. Aron og félagar eru í 7. sæti ungversku deildarinnar með 28 stig.

Akhisar Belediyespor 0-2 Fatih Karagumruk
Theódór Elmar Bjarnason lék fyrri hálfleikinn í 0-2 tapi í Tyrklandi fyrr í dag. Theódór og félagar í Akhisar eru í 8. sæti fyrstu deildar með 32 stig.

Cherno More Varna 2-2 Levski Sofia
Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Levski Sofia í dag þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Cherno More Varna. Levski Sofia er í öðru sæti búlgörsku deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði Ludogorets.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner