Liverpool óttast að Jordan Henderson verði frá keppni í nokkrar vikur eftir að hann meiddist á nára í tapinu gegn Everton um helgina.
Henderson fór meiddur af velli eftir hálftíma á laugardaginn.
Henderson fór meiddur af velli eftir hálftíma á laugardaginn.
Samkvæmt fréttum frá Englandi gæti hann misst af næstu fimm leikjum hjá Liverpool vegna meiðslanna.
Henderson hefur spilað mikið í hjarta varnarinnar undanfarnar vikur vegna meiðsla hjá varnarmönnum Liverpool.
Betri fréttir eru af Diogo Jota en hann snýr aftur til æfinga í vikunn eftir að hafa verið frá keppni síðan í desember.
Athugasemdir