Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 22. febrúar 2021 09:27
Magnús Már Einarsson
Rúrik til liðs við Viaplay
Rúrik Gíslason.
Rúrik Gíslason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu, Rúrik Gíslason, sem spilaði 53 landsleiki fyrir Ísland, mun leiða knattspyrnuumfjöllun Viaplay á Íslandi frá tímabilinu 2021/2022.

„Viaplay tryggði sér nýlega rétt til að sýna frá Þjóðadeild Evrópu, undankeppni EM karla í knattspyrnu sem og Meistaradeild Evrópu, Evrópudeildina og UEFA Conference League á tímabilinu 2021/22–2023/24 (er deilt með SÝN). Rúrik kemur mjög sterkur inn í hæfileikaríkt teymi Viaplay í aðdraganda þess að sýningar hefjast á þessum keppnum," segir í fréttatilkynningu.

„Þegar NENT Group/Viaplay tryggir sér réttindi til að sýna frá stórum knattspyrnuviðburðum líkt og tilfellið er hér, leggjum við áherslu á að byggja upp öflugt teymi til að leiða umfjöllun um þessa viðburði. Við höfum verið leiðandi í framleiðslu á íþróttaefni á Norðurlöndunum í meira en 20 ár og höfum í hyggju að vera það einnig á Íslandi. Þar sem Rúrik hefur nýlokið ferli sínum sem atvinnumaður í knattspyrnu kemur hann með ferska nálgun á viðfangsefnið, mikla þekkingu og byggir þar að auki á eigin reynslu af því að leika knattspyrnu á hæsta gæðaflokki,“ segir Kim Mikkelsen, yfirmaður íþróttamála hjá NENT.

Rúrik lék með íslenska landsliðinu á HM í Rússlandi 2018 og FCK í Meistaradeild Evrópu á tímabilinu 2014/15 og er því að sjálfsögðu mjög spenntur að taka þátt í að færa þessar sömu keppnir heim í stofu til áhorfenda.

„Síðan ég tók ákvörðun um að leggja skóna á hilluna hef ég verið að leita mér að spennandi og áhugaverðri áskorun. Þegar Viaplay skýrði mér frá framtíðarhugmyndum og plönum varð ég strax til í að taka þátt í þessu verkefni. Ég hlakka mikið til að verða hluti af teymi Viaplay og við ætlum að leggja allt í að færa áhorfendum heimsklassaumfjöllun um fótbolta á Íslandi. Ég tel mig hafa mikið fram að færa með reynslu minni af atvinnumennsku í fótbolta og er spenntur að leggja mitt af mörkum í skemmtilegri, grípandi og áhugaverðri umfjöllun um Meistaradeildina, Evrópudeildina, Conference League sem og leiki íslenska landsliðsins,” segir Rúrik sem lauk ferli sínum sem atvinnumaður í knattspyrnu í árslok 2020 og hafði þá meðal annars leikið fyrir Charlton, FCK og FC Nürnberg.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner