Fotbolti.net
22.03.19 - 10:23
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Andorra

Martin Hermanns keppir 20 metrum frá landsleiknum

Martin Hermannsson.

Martin Hermannsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Það verður annar áhugaverður íþróttakappleikur á sama tíma og Ísland leikur gegn Andorra, aðeins 20 metrum frá!

Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, er að fara að keppa með liði sínu Alba Berlín gegn MoraBanc Andorra í Evrópukeppninni.

Körfuboltahöllin er við hlið þjóðarleikvangsins í fótbolta og er knattspyrnusamband Andorra búið að reikna út að það eru aðeins 20 metrar á milli, eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan.

Leikirnir tveir verða á nákvæmlega sama tíma en þess má til gamans geta að Martin, sem er mikill fótboltaáhugamaður, er fyrrum vallarstarfsmaður á Laugardalsvelli.
Martin Hermanns keppir 20 metrum frá landsleiknum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.