Dagur Fjeldsted í Grindavík (Staðfest)


Mynd: Grindavík


Mynd: Grindavík

Grindavík er búið að krækja í efnilegan Blika á lánssamningi sem gildir út tímabilið. Sá heitir Dagur Örn Fjeldsted og er á átjánda aldursári.
Dagur Örn er leikinn kantmaður sem gerði flotta hluti í æfingaleikjum með meistaraflokki Breiðabliks í vetur.
„Dagur hefur æft með okkur að undanförnu og hefur fallið vel inn í hópinn. Hann er snöggur og er óhræddur við að taka leikmenn á. Dagur er efnilegur leikmaður sem mun vonandi vaxa og dafna hjá okkur í Grindavík,“ segir Helgi Sigurðsson, þjálfari Grindavíkur.
Það verður athyglisvert að fylgjast með hvernig Degi tekst að fóta sig í Lengjudeildinni í sumar.



