Jeremie Boga, leikmaður Sassuolo á Ítalíu, er afar eftirsóttur um þessar mundir en ítölsku félögin Atalanta og Napoli vilja fá hann í sumar. Þetta segir umboðsmaður hans í samtali við Calciomercato.
Boga, sem 23 ára gamall, hefur spilað vel með Sassuolo frá því hann kom til félagsins frá Chelsea árið 2018.
Hann hefur þegar gert átta mörk á þessari leiktíð og er farinn að vekja athygli stærri liða.
Daniel Boga, bróðir hans og umboðsmaður, segist að Atalanta og Napoli hafi þegar sýnt mikinn áhuga en Chelsea á þó alltaf kaupréttinn á leikmanninum.
Chelsea á möguleika á því að kaupa hann 13 milljónir punda en óvíst er hvort félagið nýti sér það.
Athugasemdir