22.06.13 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Virgil Van Dijk til Glasgow Celtic (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Skosku meistararnir í Glasgow Celtic hafa keypt hollenska varnarmanninn Virgil Van Dijk frá FC Groningen.
Van Dijk, sem er 21 árs gamall, kom til Glasgow á fimmtudag þar sem hann gekkst undir læknisskoðun áður en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við skoska liðið.
Hann hefur staðið sig vel með Groningen, en það skilaði honum sæti í U21 árs landsliði Hollands.
,,Það er mjög gott að vera hérna og ég get ekki beðið eftir að spila með liðinu. Celtic er stærsta lið Skotlands og liðið er í Meistaradeildinni, svo ég get ekki beðið,\" sagði Van Dijk.