Daníel Hafsteins framlengir við KA (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daníel Hafsteinsson verður hjá KA út tímabilið 2025 en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu á samfélagsmiðlum.
KA-maðurinn er einn af mikilvægustu mönnum liðsins og á dögunum spilaði hann hundraðastsa leik sinn fyrir félagið ásamt því að gerast markahæsti leikmaður félagsins í Evrópukeppnum.
Hann spilaði með meistaraflokki félagsins frá 2017 til 2019 áður en hann var seldur til Helsingborg í Svíþjóð. Sænska félagið lánaði hann til FH árið 2020 og sneri hann síðan aftur til KA tímabilið á eftir.
Einhver umræða var um að hann vildi fara frá KA í lok síðasta mánaðar vegna slæms gengis liðsins en hann verður áfram og það út 2025.
Hann skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning í dag og er það mikið fagnaðarefni fyrir félagið.
KA er komið í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu þar sem liðið mætir Dundalk frá Írlandi og því spennandi tímar framundan hjá félaginu.

RISAFRÉTTIR! DANNI HAFSTEINS FRAMLENGIR ÚT 2025!
— KA (@KAakureyri) July 22, 2023
Danni er algjör lykilmaður í liði KA og lék á dögunum sinn 100. leik fyrir félagið. Þá er hann orðinn markahæsti leikmaður KA í Evrópu, geggjaðar fréttir! #LifiFyrirKA pic.twitter.com/JYgTsLbFWq