Emre Can gerir nýjan samning við Dortmund (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emre Can er að gera nýjan þriggja ára samning við Borussia Dortmund samkvæmt fjölmiðlum í Þýskalandi.
Varnartengiliðurinn á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Dortmund og hefur félagið ákveðið að semja við hann í stað þess að leita sér að nýjum miðijumanni til að fylla í skarðið.
Emre Can er 29 ára gamall og spilaði 38 leiki með Dortmund á síðustu leiktíð. Hann á 121 leik að baki fyrir félagið en þar áður var hann hjá Juventus, Liverpool, Bayer Leverkusen og FC Bayern.
Dortmund seldi Jude Bellingham til Real Madrid í sumar og er búið að kaupa Felix Nmecha frá Manchester City til að styrkja miðjuna. Félagið vildi kaupa Edson Alvarez frá Ajax en er hætt við eftir að hafa tekið ákvörðun um að bjóða Can frekar samning.
Emre Can á 41 landsleik að baki fyrir Þýskaland og mun nýi samningurinn gilda næstu þrjú árin, til 2026.
Uppfært: Dortmund hefur staðfest samkomulagið.
Emre Can signs new deal at Borussia Dortmund… via Career Mode. ??????????? pic.twitter.com/qw6ooms0Mp
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 22, 2023




