Fotbolti.net
22.07.23 - 11:00
Ívan Guðjón Baldursson

Ívan Óli Santos heim í ÍR (Staðfest) - Ólafur Örn líka kominn

Ívan Óli Santos heim í ÍR (Staðfest) - Ólafur Örn líka kominn
Canon

Mynd: Jóhanna Kristín Hauksdóttir

Ívan Óli Santos og Ólafur Örn Ásgeirsson munu spila með ÍR út tímabilið og hjálpa þeim í baráttunni sem er framundan í efri hluta 2. deildar.

ÍR byrjaði sumarið vel en er búið að tapa fjórum af síðustu fimm deildarleikjum sínum og situr um miðja deild - sex stigum frá öðru sætinu.

Ívan Óli kemur til ÍR frá Lengjudeildarliði Gróttu þar sem hann er búinn að koma við sögu í sjö deildarleikjum það sem af er sumars. Ívan er uppalinn hjá ÍR en hefur leikið með HK og Gróttu síðustu tvö ár.

Hann er fæddur 2003 og spilar sem framherji. Hann á 10 mörk í 45 leikjum með ÍR.

Ólafur Örn er uppalinn hjá HK og er einnig fæddur 2003. Hann á aðeins sex leiki að baki í meistaraflokki en þá lék hann fyrir HK, Ými og Þrótt Vogum.

Ólafur er markvörður og tókst að halda markinu hreinu í tveimur af þremur leikjum sínum með aðalliði HK.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.