Fotbolti.net
22.07.23 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Kaboré framlengir við City og fer til Luton (Staðfest)

Kaboré á 30 leiki að baki fyrir landslið Búrkína Fasó. Bertrand Traore hjá Aston Villa og Dango Ouattara hjá Bournemouth eru landsliðsfélagar hans.

Kaboré á 30 leiki að baki fyrir landslið Búrkína Fasó. Bertrand Traore hjá Aston Villa og Dango Ouattara hjá Bournemouth eru landsliðsfélagar hans.

Canon

Mynd: EPA

Nýliðar ensku úrvalsdeildarinnar Luton Town eru búnir að krækja í hægri bakvörðinn Issa Kaboré á láni frá Manchester City sem gildir út tímabilið.

Kabore er 22 ára gamall sókndjarfur bakvörður sem var uppalinn í heimalandi sínu, Búrkína Fasó, til 18 ára aldurs. Eftir það hélt hann til Mechelen í Belgíu en var fljótt keyptur yfir til Manchester City.

Man City lánaði Kabore meðal annars til Troyes og Marseille þar sem hann stóð sig vel. Hann kom við sögu í 29 leikjum með Marseille á síðustu leiktíð og mun berjast um byrjunarliðssæti hjá Luton í vetur.

Bakvörðurinn átti aðeins tvö ár eftir af samningi sínum við City en er búinn að gera nýjan samning sem gildir til 2027. Ekki er búið að tilkynna samkomulagið en það er einungis talið vera tímaspursmál.

Það fylgir enginn kaupmöguleiki með lánssamningnum.

Kabore er fimmti leikmaðurinn til að ganga í raðir Luton í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.