Fotbolti.net
22.07.23 - 19:45
Brynjar Ingi Erluson

Moussa Diaby til Aston Villa (Staðfest)

Moussa Diaby til Aston Villa (Staðfest)
Canon

Mynd: Aston Villa

Franski kantmaðurinn Moussa Diaby er genginn til liðs við Aston Villa frá Bayer Leverkusen.
Diaby er 24 ára gamall og getur spilað á báðum vængjunum en hann hefur verið að gera það gott í Þýskalandi.

Hann kom að 69 mörkum í 125 leikjum með Leverkusen í deildinni en mun nú reyna fyrir sér á Englandi.

Aston Villa keypti hann í dag fyrir um það bil 53 milljónir punda og skrifaði hann undir fimm ára samning.

Diaby var einnig í viðræðum við Al-Nassr frá Sádi-Arabíu en ákvað að hafna risatilboði félagsins og ganga í raðir Villa.

Frakkinn á 9 A-landsleiki fyrir hönd franska landsliðsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.