Fotbolti.net
22.07.23 - 19:25
Brynjar Ingi Erluson

Noah Okafor frá Salzburg til Milan (Staðfest)

Noah Okafor frá Salzburg til Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: Milan

Svissneski vængmaðurinn Noah Okafor er mætur til AC Milan frá austurríska félaginu RB Salzburg.
Þessi 23 ára gamli leikmaður hefur slegið í gegn með Salzburg síðustu ár og verið í fastahlutverki með svissneska landsliðinu.

Salzburg komst að samkomulagi við Milan um að selja leikmanninn til Ítalíu fyrir 14 milljónir evra.

Í dag skrifaði hann svo undir fjögurra ára samning við félagið en þetta er sjötti leikmaðurinn sem Milan fær í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.