Fotbolti.net
22.07.23 - 16:28
Ívan Guðjón Baldursson

Ögmundur kominn til Kifisia (Staðfest)

Ögmundur kominn til Kifisia (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ögmundur Kristinsson er búinn að gera samning við PAE Kifisia, sem eru nýliðar í efstu deild í Grikklandi.

Ögmundur, sem er 34 ára gamall, kemur á frjálsri sölu frá Olympiakos og gerir eins árs samning við Kifisia. 

Grikkirnir Alexandros Anagnostopoulos, Giannis Nikopolidis og Theodoros Antonopoulos eru samningsbundnir félaginu og mun Ögmundur helst berjast við Anagnostopoulos um byrjunarliðssæti. 

Ögmundur lék með Randers, Hammarby, Excelsior og AEL áður en hann var fenginn til Olympiakos, þar sem hann endaði sem varamarkvörður.

Ögmundur spilaði aðeins níu leiki á þremur árum hjá Olympiakos en getur nú öðlast langþráðan spiltíma hjá nýju félagi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.