Fotbolti.net
22.07.23 - 14:20
Ívan Guðjón Baldursson

Ola Aina kominn til Forest (Staðfest)

Ola Aina kominn til Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nottingham Forest er búið að tilkynna komu Ola Aina til félagsins á frjálsri sölu.

Aina er fyrsti leikmaðurinn sem gengur í raðir Forest í sumar eftir að félagið keypti gríðarlegt magn nýrra leikmanna á síðustu leiktíð og bjargaði sér frá falli.

Aina er 26 ára gamall og leikur sem sókndjarfur bakvörður. Hann er uppalinn hjá Chelsea en spilaði aðeins sex leiki fyrir aðalliðið áður en hann var seldur til Torino fyrir um 9 milljónir punda.

Aina náði ekki að vinna sér inn byrjunarliðssæti hjá Torino og kom aðeins við sögu í 21 leik á síðustu leiktíð áður en hann rann út á samningi.

Forest er með mikið af hægri bakvörðum innanborðs en Aina getur einnig spilað í vinstri bakverði. Serge Aurier, Neco Williams og Giulian Blancone eru allir í hópi hjá Forest, auk Richie Laryea og Mohamed Dräger.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.