Reading kaupir Charlie Savage frá Man Utd (Staðfest)

Mynd: Reading

Mynd: Reading
Enski miðjumaðurinn Charlie Savage skrifaði í dag undir fjögurra ára samning hjá enska B-deildarfélaginu Reading.
Manchester United samþykkti á dögunum tilboð Reading í Savage og náði leikmaðurinn samkomulagi um kaup og kjör áður en skipti hans voru tilkynnt í dag.
Savage er tvítugur og alinn upp hjá Uniteden hann spilaði sinn fyrsta og eina leik fyrir aðalliðið fyrir tveimur árum er hann kom inná undir lokin í leik gegn svissneska liðinu Young Boys í Meistaradeild Evrópu.
Hann er fæddur á Englandi en hefur leikið fyrir öll yngri landslið Wales.
Faðir hans er Robbie Savage, sem ólst einmitt líka upp hjá United, en hann er hvað þekktastur fyrir tíma sinn hjá Blackburn, Leicester, Derby og Birmingham.