Umtiti genginn til liðs við Hákon og félaga hjá Lille (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: FIFA


Mynd: EPA
Franska félagið Lille er búið að krækja í miðvörðinn Samuel Umtiti á frjálsri sölu frá Barcelona.
Umtiti þótti einn efnilegasti miðvörður heimsfótboltans þar til hann varð fyrir slæmum meiðslum og náði sér ekki aftur á strik.
Hann varð heimsmeistari með Frakklandi 2018 og hafði verið mikilvægur hlekkur í varnarlínu Barcelona fram að því, en eftir meiðslin virtist hann ekki ná sér aftur á strik. Allt þar til hann fór til Lecce á lánssamningi og hjálpaði liðinu að forðast fall úr Serie A deild ítalska boltans. Þar var hann liðsfélagi Þóris Jóhanns Helgasonar og reyndist besti leikmaður liðsins.
Lecce tókst ekki að halda Umtiti, sem hefur ákveðið að skipta yfir til Lille. Þar fær hann nýjan íslenskan liðsfélaga, Hákon Arnar Haraldsson. Hákon Arnar var keyptur til Lille fyrir 17 milljónir evra og er kominn með tvennu eftir stundarfjórðung af sínum fyrsta leik með félaginu - æfingaleik gegn Cercle Brugge.
Umtiti gerir tveggja ára samning við Lille en hann er 29 ára gamall og annar leikmaðurinn til að ganga til liðs við félagið í sumar eftir Hákoni.
Welcome back, Big Sam ???????? pic.twitter.com/aIy39Oo3qQ
— Ligue 1 English (@Ligue1_ENG) July 22, 2023


Mynd: FIFA




