Fotbolti.net
22.07.23 - 16:48
Ívan Guðjón Baldursson

Victor Boniface kominn til Leverkusen (Staðfest)

Victor Boniface kominn til Leverkusen (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Bayer Leverkusen er að festa kaup á nígeríska framherjanum Victor Boniface sem var valinn í draumalið ársins í Evrópudeildinni á síðustu leiktíð, spilandi fyrir Royale Union Saint-Gilloise frá Belgíu.

Leverkusen borgar 20 milljónir evra fyrir Boniface, en ofan á það bætast árangurstengdar aukagreiðslur sem nema tæpum 10 milljónum til viðbótar og prósentuhlutfall af næstu sölu leikmannsins.

Boniface er 22 ára gamall og braust fram í sviðsljósið með Bodö/Glimt í Noregi og var keyptur til Union SG í ágúst í fyrra. Hann kom að 29 mörkum í 51 leik á sínu fyrsta tímabili hjá Union SG og hjálpaði liðinu alla leið í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar. Þar slógu Belgarnir meðal annars Union Berlin, Malmö og Braga úr leik áður en þeir töpuðu gegn Bayer Leverkusen.

Boniface fer í læknisskoðun hjá Leverkusen í dag og verður kynntur á næstu dögum, en Leverkusen leikur í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í haust.

Uppfært: Leverkusen hefur staðfest félagsskiptin

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.