14.08.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Fanneyjar


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fanney Inga Birkisdóttir spilaði sinn fyrsta deildarleik fyrir Valerenga í norsku deildinni í dag en hún gekk til liðs við félagið frá Hacken í síðasta mánuði. Hún hefur verið í markinu í undanförnum leikjum í Evrópukeppninni.
Valerenga fékk Bodö/Glimt í heimsókn í dag og vann 4-1. Arna Eiríksdóttir var einnig í byrjunarliðinu.
Valerenga fékk Bodö/Glimt í heimsókn í dag og vann 4-1. Arna Eiríksdóttir var einnig í byrjunarliðinu.
Liðið hafði tapað síðustu þremur leikjum í deildinni. Valerenga er með 22 stig eftir 13 umferðir í 4. sæti.
María Catharina Ólafsdóttir Gros spilaði 63 mínútur þegar Djurgarden vann 3-2 sigur á Vaxjö í sænsku deildinni. Djurgarden er í 11. sæti með 14 stig eftir 14 umferðir.
María Catharina Ólafsdóttir Gros spilaði 63 mínútur þegar Djurgarden vann 3-2 sigur á Vaxjö í sænsku deildinni. Djurgarden er í 11. sæti með 14 stig eftir 14 umferðir.
