Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 22. ágúst 2019 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Keylor Navas fer fram á sölu frá Real Madrid
Keylor Navas er ósáttur og vill komast frá Real Madrid
Keylor Navas er ósáttur og vill komast frá Real Madrid
Mynd: Getty Images
Keylor Navas, markvörður Real Madrid á Spáni, vill komast burt frá félaginu en MARCA greinir frá í kvöld.

Navas er 32 ára gamall og hefur spilað 162 leiki fyrir Real Madrid en á tíma sínum þar hefur hann unnið Meistaradeildina þrisvar og spænsku deildina einu sinni.

Hann hefur verið með bestu markvörðum heims síðustu ár en á síðasta ári ákvað Real Madrid hins vegar að kaupa Thibaut Courtois frá Chelsea og hefur Navas verið varaskeifa síðan þá.

Courtois átti afleitt tímabil en Navas aðeins 21 leik til að spreyta sig og hefur hann nú fengið nóg.

Samkvæmt MARCA þá er Navas búinn að fara fram á sölu frá Madrídingum en þessi landsliðsmaður Kosta Ríka vill komast til Paris Saint-Germain í Frakklandi.

Thomas Tüchel, þjálfari PSG, vill ólmur fá Navas og gæti það orðið að veruleika áður en glugginn lokar.
Athugasemdir
banner
banner
banner