Fotbolti.net
22.08.22 - 21:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fernandes gerði allt vitlaust - Átti hann að fá rautt spjald?

Bruno Fernandes.

Bruno Fernandes.

Canon

Mynd: Getty Images

Bruno Fernandes, miðjumaður Manchester United, gerði allt brjálað í leiknum gegn Liverpool áðan.
United komst í 2-0 í leiknum en Mohamed Salah minnkaði muninn fyrir Liverpool á 81. mínútu.

Fernandes fór mikið í taugarnar á stuðningsfólki Liverpool með hegðun sinni í leiknum. Hann gerði mikið úr ölluum atvikum, dýfði sér og vældi mikið í dómaranum.

Hann setti svo kirsuberið á kökuna með því að fara í einhvern furðulegan leik eftir mark Salah. Hann vildi ekki gefa leikmönnum Liverpool boltann. Hann var þar á gulu spjaldi en slapp með að fá seinna gula.

Fernandes fær mikið hatur á samfélagsmiðlum í kvöld, en honum gæti örugglega ekki verið meira sama eftir flottan 2-1 sigur.






Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.