Kristófer Ingi Kristinsson spilaði sinn fyrsta heila leik fyrir danska úrvalsdeildarliðið SönderjyskE og skoraði sín fyrstu mörk þegar liðið mætti B 1913 í dönsku bikarkeppninni.
SönderjyskE komst í 4-0 í leiknum og skoraði Kristófer tvö af þeim. En B 1913, sem er í E-deild danska boltans, náði óvænt að skapa spennu í leiknum. 4-3 enduðu leikar.
SönderjyskE komst í 4-0 í leiknum og skoraði Kristófer tvö af þeim. En B 1913, sem er í E-deild danska boltans, náði óvænt að skapa spennu í leiknum. 4-3 enduðu leikar.
Kristófer, sem er 22 ára gamall, kom til SönderjyskE frá Grenoble í Frakklandi í sumar og hefur leikið átta leiki með danska liðinu í úrvalsdeildinni.
Elías Rafn Ólafsson varði mark Midtjylland sem vann 5-0 sigur gegn Kjellerup og flaug áfram í næstu umferð.
Athugasemdir