Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 22. október 2019 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Campbell og Hemmi teknir við Southend (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Southend United, sem er í næstneðsta sæti ensku C-deildarinnar, er búið að ráða Sol Campbell sem knattspyrnustjóra.

Staðan er afar slæm hjá Southend þar sem liðið er átta stigum frá öruggu sæti eftir aðeins fjórtán umferðir. Liðið er komið með fimm stig.

Hermann Hreiðarsson mun starfa sem aðstoðarþjálfari Campbell og segja enskir fjölmiðlar að Andy Cole mun vera partur af þjálfarateyminu.

Campbell starfaði síðast við stjórnvölinn hjá Macclesfield og bjargaði liðinu frá falli úr D-deildinni. Hermann var ráðinn til Macclesfield í sumar en þeir félagar sögðu báðir upp störfum í haust vegna fjárhagsvandræða félagsins.


Athugasemdir
banner
banner