Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 23. janúar 2020 17:50
Ívan Guðjón Baldursson
Aston Villa fær Louie Barry frá Barca (Staðfest)
Mynd: Twitter
Aston Villa er búið að kaupa enska ungstirnið Louie Barry frá Spánarmeisturum Barcelona fyrir eina milljón evra.

Barry er 16 ára gamall og gekk til liðs við Barcelona síðasta sumar. Hann ólst upp hjá West Bromwich Albion en fór frítt til Barca eftir að hafa neitað að skrifa undir atvinnumannasamning við West Brom.

Barry spilaði aðeins 10 leiki fyrir unglingalið Barca og skoraði tvö mörk, spilandi ýmist sem fremsti maður eða úti á hægri kanti. Hann spilaði þrjá leiki í unglingakeppni UEFA og lagði eitt mark upp.

„Þessi félagaskipti senda sterk skilaboð um metnað félagsins," segir Mark Harrison, yfirmaður knattspyrnuakademíu Aston Villa.

Barry flytur því aftur heim en fjölskylda hans býr í Birmingham og heldur með Aston Villa. Barry æfði með West Brom, sem er skammt frá, í tíu ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner