Fotbolti.net
23.01.20 - 21:51
Ívan Guðjón Baldursson

England: Liverpool með 16 stiga forystu

England: Liverpool með 16 stiga forystu
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves 1 - 2 Liverpool
0-1 Jordan Henderson ('8)
1-1 Raul Jimenez ('51)
1-2 Roberto Firmino ('84)
Wolves tók á móti Liverpool, toppliði ensku úrvalsdeildarinnar, í dag og lenti undir eftir 8 mínútur. Jordan Henderson skoraði þá með skalla eftir hornspyrnu frá Trent Alexander-Arnold.

Eftir um hálftíma af leiknum þurfti Sadio Mane að fara meiddur af velli og kom Takumi Minamino inn í hans stað. Meira var ekki skorað fyrir leikhlé.

Raul Jimenez jafnaði fyrir heimamenn í upphafi síðari hálfleiks. Hann skoraði með skalla eftir góða skyndisókn. Adama Traore gaf frábæra fyrirgjöf sem rataði beint á koll Jimenez.

Bæði lið komust nálægt því að taka forystuna eftir jöfnunarmarkið en það var ekki fyrr en á 84. mínútu sem næsta mark leit dagsins ljós. Nú var það Roberto Firmino sem skoraði með óverjandi skoti úr teignum eftir sendingu frá Henderson.

Meira var ekki skorað og hafði Liverpool betur í spennandi leik. Liverpool er komið í 16 stiga forystu á toppinum, með leik til góða. Úlfarnir eru í sjöunda sæti, jafnir Tottenham og Manchester United á stigum.

Það virðist lítið sem ekkert getað stöðvað Liverpool um þessar mundir. Liðið getur komist í 19 stiga forystu með sigri á útivelli gegn West Ham næsta miðvikudag.

Til gamans má geta að þetta er fyrsta deildarmark sem Alisson fær á sig í tvo mánuði, eða síðan í 1-2 sigri gegn Crystal Palace 23. nóvember.
England: Liverpool með 16 stiga forystu
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.