Fotbolti.net
23.01.21 - 21:52
Victor Pálsson

England: Sæti Bruce orðið verulega heitt

Markaskorarar kvöldsins.

Markaskorarar kvöldsins.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Aston Villa 2 - 0 Newcastle</b>
1-0 Ollie Watkins('13)
2-0 Bertrand Traore('42)
Aston Villæa vann þægilegan sigur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið spilaði við Newcastle á Villa Park.

Newcastle hefur gengið mjög erfiðlega undanfarið og hefur tapað fjórum síðustu leikjum sínum eftir tapið í kvöld.

Ollie Watkins og Bertrand Traore gerðu mörk Villa í leiknum en þau komu bæði í fyrri hálfleik.

Villa var miklu betra liðið í leik kvöldsins og ljóst er að sæti Steve Bruce hjá Newcastle er orðið verulega heitt.

Newcastle er enn sjö stigum frá fallsæti en liðið fékk síðast stig þann 30. desember í markalausu jafntefli gegn Liverpool.

Villa lyftri sér upp í áttunda sæti deildarinnar með sigrinum og er fjórum stigum frá Tottenham sem er í fimmta sæti.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.