Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 23. janúar 2023 15:18
Elvar Geir Magnússon
Messi vill ekki skrifa undir nýjan samning við PSG
Mynd: EPA
Hinn afskaplega áreiðanlegi íþróttafréttamaður Gerard Romero segir að Lionel Messi hafi snúist hugur og ákveðið að framlengja ekki dvöl sína hjá Paris St-Germain.

Eftir sigur Messi með Argentínu á HM er Messi sagður líta öðrum augum á sinn feril en núgildandi samningur hans við PSG rennur út í sumar. Hann ku vilja njóta síðustu ára ferils síns og þar séu peningarnir ekki aðalmálið.

Þegar eru farnar af stað vangaveltur um að Messi gæti snúið aftur heim til Barcelona en samband hans og núverandi stjórnenda félagsins er afskaplega gott.

Messi er 35 ára og er að margra mati besti fótboltamaður sögunnar.

PSG heiðraði hann ekki sérstaklega eftir sigurinn á HM og sögusagnir um að það hafi ekki lagst vel í argentínska snillinginn.
Athugasemdir
banner
banner