Nú er í gangi leikur Leeds United og Southampton í ensku úrvalsdeildinni og er staðan 1-0 fyrir Leeds þegar þetta er skrifað. Patrick Bamford gerði markið.
Á 39. mínútu slapp Raphinha, leikmaður Leeds, einn í gegnum vörn gestana og allt leit út fyrir að hann væri að fara skora.
Oriol Romeu, leikmaður Southampton, hélt hins vegar ekki. Hann elti Raphinha uppi og náði á ótrúlegan hátt að stöðva Brasilíumanninn með magnaðri tæklingu og bjarga að öllum líkindum marki.
Southampton fékk dæmda vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum en eftir að Andre Mariner, dómari leiksins, skoðaði atvikið í VAR skjánum ákvað hann að hætta við dóminn.
Tæklinguna hjá Romeu má sjá hérna.
That Romeu challenge might be better than any goal I’ve ever seen.
— Jack Rosser (@JackRosser_) February 23, 2021
Athugasemdir