Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 23. mars 2020 18:30
Elvar Geir Magnússon
Börsungar gætu boðið 70 milljónir evra og tvo leikmenn í Martínez
Lautaro Martínez er á óskalista Barcelona.
Lautaro Martínez er á óskalista Barcelona.
Mynd: Getty Images
El Mundo Deportivo segir að Barcelona sé að undirbúa tilboð í Lautaro Martínez, sóknarleikmann Inter, sem hljóðar upp á 70 milljónir evra auk tveggja leikmanna.

Börsungar eru sagðir tilbúnir að láta Inter fá miðjumanninn Arturo Vidal og portúgalska bakvörðinn Nelson Semedo.

Spánarmeistararnir vilja fá Martínez til að verða arftaki Luis Suarez sem er á leið niður brekkuna.

Martínez er 22 ára og hefur skorað 16 mörk í 30 leikjum fyrir Inter á þessu tímabili. Hann hefur mikið heillað í Meistaradeildinni þar sem hann er með fimm mörk í sex leikjum.

Manchester United og Manchester City hafa einnig sýnt Martínez ahuga en Barcelona er talinn líklegasti áfangastaðurinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner