Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. mars 2024 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Dragusin um Albert: Leyfið honum að elda
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frammistaða Alberts Guðmundssonar í leik íslenska landsliðsins gegn Ísrael um helgina hefur vakið athygli víða.


Albert skoraði þrennu og átti stóran þátt í einu marki í 4-1 sigri sem tryggði liðinu úrslitaleik gegn Úkraínu um sæti á EM sem fram fer á þriðjudaginn í Póllandi.

Radu Dragusin leikmaður Tottenham og fyrrrum samherji Alberts hjá Genoa var virkilega ánægður með hann, en hann deildi skjáskoti af úrslitum leiksins ásamt mynd af Alberti á Instagram.

Hann lét örstutt og hnitmiðuð skilaboð fylgja myndinni.

„Leyfið honum að elda (e. Let him cook)," skrifaði Dragusin.


Athugasemdir
banner
banner
banner