Grindavík fær sóknarmann frá Króatíu (Staðfest)


Mynd: Grindavík


Mynd: Grindavík
Grindavík hefur fengið liðsstyrk fyrir baráttuna í Lengjudeildinni í sumar en framherjinn Edi Horvat er genginn til liðs við liðið.
Horvat er 24 ára gamall en hann er fæddur í Zagreb í Króatíu. Hann hefur spilað í Slóveníu og Bandaríkjunum svo eitthvað sé nefnt en hann kemur frá slóvenska liðinu NK Krka Novo Mesto.
Edi mun því styrkja sóknarlínu liðsins en Grindavík ætlar sér stóra hluti í Lengjudeildinni í sumar. Fyrsti leikur liðsins er gegn ÍA á útivelli þann 5. maí næstkomandi.
Þá er liðið komið áfram í Mjólkurbikarnum en það vann Dalvík/Reyni á fimmtudeginum síðasta með tveimur mörkum gegn engu.



