Fotbolti.net
23.06.17 - 21:39
Mist Rúnarsdóttir

Arna Sif: Landsliðsvalið kom á óvart

Auglýsing
Arna Sif hélt upp á landsliðssætið með flottri frammistöðu í kvöld

Arna Sif hélt upp á landsliðssætið með flottri frammistöðu í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hertz
„Þetta var sanngjarnt,“ sagði Arna Sif Ásgrímsdóttir Valsari eftir 5-0 sigur á HK/Víking í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins.

„Við vorum dálítið að finna taktinn í fyrri hálfleik. Við vorum ekki alveg að ná að spila eins og við ætluðum okkur, láta boltann rúlla og svona. En svo kom þetta í seinni og þá var þetta engin spurning.“
Arna Sif var öflug í öftustu línu og nautsterk í loftinu. Hún skoraði tvö mörk eftir hornspyrnur Stefaníu Ragnarsdóttur og lagði upp eitt.

„Það er minn helsti styrkleiki svo þetta á að vera dauðafæri í hvert skipti sem að við fáum horn. Það er jákvætt að þetta sé að detta inn núna,“ sagði Arna Sif sem var valin í lokahóp EM í gær.

Átti hún von á að vera í lokahópnum?

„Nei, alls ekki. Ég var eiginlega búin að ákveða að svo væri ekki þar sem ég var ekki búin að vera í hópnum í síðustu verkefnum. Þetta kom skemmtilega á óvart.“

Nánar er rætt við Valsarann og landsliðskonuna Örnu Sif í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.