Fotbolti.net
23.07.23 - 14:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Barnes mættur til Newcastle (Staðfest)

Barnes mættur til Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Harvey Barnes er genginn til liðs við Newcastle og gerir fimm ára samning við félagið.

Barnes kemur til liðsins frá Leicester en hann er þriðji leikmaðurinn sem Newcastle nælir í á eftir Sandro Tonali og unga framherjanum Yankuba Minteh.

Barnes var í liði Leicester sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en hann átti sitt besta tímabil á ferlinum fyrir framan markið. Hann skoraði 13 mörk í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

„Ég er í skýjunum. Þetta er stórkostlegt félag og fyrir mér er þetta risastórt tækifæri til að koma og vera hluti af liði sem er að gera spennandi hluti," sagði Barnes við undirskriftina.

„Það er draumur framherjans að koma í svona lið. Það er mikill hraði og þarfnast mikinn líkamsstyrks. Það veitir okkur færi svo mér finnst það henta mínum leikstíl."

Barnes er 25 ára Englendingur og er uppalinn hjá Leicester. Hann hefur leikið einn landsleik.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.