Fotbolti.net
23.07.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Björk semur við Víking (Staðfest)

Björk semur við Víking (Staðfest)
Canon

Mynd: Víkingur R.

Hertz
Markvörðurinn Björk Björnsdóttir hefur skrifað undir samning við Víking R. út þetta tímabil en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Björk er fædd árið 1989 og með gríðarlega mikla reynslu en hún steig sín fyrstu skref með meistaraflokki árið 2007 þá aðeins 18 ára gömul.

Á löngum ferli hefur hún leikið fyrir Fylki, Val, HK/Víking, HK og KR en þar að auki lék hún fyrir Avaldsnes í Noregi.

Á síðasta tímabili spilaði hún sex leiki fyrir KR í Bestu deild kvenna en er nú gengin í raðir Víkings og mun hjálpa liðinu í baráttunni um sæti í efstu deild.

Þetta er gríðarlegur fengur fyrir Víking sem er einnig komið í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.