Danjuma til Everton (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Arnaut Danjuma hefur gengið til liðs við Everton frá Villarreal á láni út komandi tímabil.
Þessi 26 ára gamli sóknarmaður hefur reynslu úr enska boltanum en hann hefur áður leikið með Bournemouth og Tottenham í úrvalsdeildinni.
Everton var á eftir Danjuma í janúar en hann fór að lokum til Tottenham. Hann er ánægður að vera mættur til Everton.
„Það er stórkostlegt að koma til Everton. Það er kærkomið að koma í svona risafélag eins og Everton og ég er stoltur af því. Það var áhugi frá öðrum félögum en Everton togaði í mig út af stuðningsmönnunum, stjóranum og sögu félagsins," sagði Danjuma.
???? | Watch @Danjuma's first #EFC interview! ????
— Everton (@Everton) July 23, 2023




