Fotbolti.net
23.07.23 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Tottenham og fjögur önnur félög á eftir Mbappe

Tottenham og fjögur önnur félög á eftir Mbappe
Canon

Mynd: Getty Images

Fimm félög hafa áhuga á því að fá Kylian Mbappe frá Paris Saint-Germain í sumar og er enska félagið Tottenham Hotspur eitt þeirra en þetta kemur fram í MARCA.
Tottenham er óvænt nafn á þessum á lista en það er þar vegna sambands Daniel Levy, eiganda enska félagsins og Nasse Al-Khelaifi, forseta PSG.

Þeir hafa rætt saman undanfarnar vikur um enska framherjann Harry Kane og kemur því Tottenham til greina í þessa jöfnu.

Hin fjögur félögin eru Chelsea, Manchester United, Al-Hilal og auðvitað Real Madrid.

PSG telur það öruggt að Mbappe sé búinn að ná samkomulagi við Real Madrid um að ganga í raðir félagsins á frjálsri sölu á næsta ári og hefur hótað því að láta hann dúsa á bekknum allt tímabilið ef hann framlengir ekki samning sinn.

Mbappe vill bara fara til Real Madrid og kæmi það því á óvart ef hann myndi semja við félag í ensku úrvalsdeildinni.

Frakkinn fór ekki með PSG í æfingaferð til Japans á dögunum og æfir nú með öðrum leikmönnum sem félagið reynir að losa sig við í bland við leikmenn í varaliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.