Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. september 2021 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fyrrum þjálfari United gagnrýndi Van De Beek
Mynd: EPA
Manchester féll úr leik í deildarbikarnum eftir 1-0 tap gegn West Ham í gær.

Manuel Lanzini skoraði eina mark leiksins en Casey Stoney fyrrum þjálfari kvennaliðs Manchester United gagnrýndi varnartilburði Donny Van De Beek í markinu.

„Þetta er lélegur varnarleikur, hann sér manninn, ég skil ekki af hverju hann ræðst á boltann, hann á bara að dekka manninn," sagði Stoney.

Það hefur lítið sem ekkert gengið hjá Van De Beek síðan hann gekk til liðs við United en hann byrjaði gegn Young Boys en var tekinn af velli í hálfleik.

Dimitar Berbatov sagði í síðustu viku að Van De Beek sé ekki búinn að fá nógu mikinn tíma til að sýna sitt rétta andlit.
Athugasemdir
banner
banner
banner