Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 23. október 2019 14:36
Magnús Már Einarsson
Igor Bjarni gerir fimm ára samning við Hauka (Staðfest)
Igor Bjarni Kostic.
Igor Bjarni Kostic.
Mynd: Haukar
Igor Bjarni Kostic hefur skrifað undir fimm ára samning við Hauka. Hann tekur við þjálfun meistaraflokks karla auk þess sem hann mun leiða afreksþjálfun innan deildarinnar og byggja upp knattspyrnuakademíu Hauka, bæði karla og kvenna, í samstarfi við aðra þjálfara deildarinnar.

Haukar féllu úr Inkasso-deild karla í síðasta mánuði og hafa verið í þjálfaraleit undanfarnar vikur. Luka Kostic, faðir Igor, stýrði Haukum í síðustu fjóru umferðunum í sumar en hann tók við liðinu af Búa Vilhjálmi Guðmundssyni. Búi hafði tekið við af Kristján Ómari Björnssyni snemma á tímabilinu.

Igor Bjarni er 36 ára gamall en hann kemur til Hauka eftir að hafa starfað fyrir norska knattspyrnusambandið en frá árinu 2015-2019 starfaði hann hjá Ullensaker/Kisa Fotball, m.a. sem development director, sem aðalþjálfari varaliðsins auk þess að vera yfirmaður akademíunnar.

„Um er að ræða fimm ára samning og bindur stjórn knattspyrnudeildar Hauka miklar vonir við ráðningu Igors Bjarna við þróa ungt og efnilegt lið Hauka en hann kemur einnig í fullt starf hjá félaginu," segir á heimasíðu Hauka.

„Stjórn knattspyrnudeildar Hauka leggur ríka áherslu á að vera með framúrskarandi þjálfara innan sinna vébanda þar sem iðkendur þroskast sem hluti af liðsheild og safna frábærum minningum auk þess að bjóða upp á hágæða afreksþjálfun."

„Ráðning Igors Bjarna er liður í að styrkja enn frekar þjálfarateymi knattspyrnudeildar Hauka þar sem reynsla hans og þekking mun nýtast í að byggja upp efnilegt knattspyrnufólk í yngri flokkum félagsins og gera það að öflugum meistaraflokksleikmönnum. Því eru afar spennandi tímar framundan í Haukum!"
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner