Grímsi: Vil tala sem minnst um það svo við 'jinxum' það ekki
Auglýsing

Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, var stoðsendingahæsti leikmaður Bestu deildarinnar í sumar. Hallgrímur var með 13 stoðsendingar á tímabilinu sem er jöfnun á meti í efstu deild en hann var svekktur að ná ekki að bæta metið.
„Ég er stoltur og þetta er mikill heiður, en það hefði verið gaman að ná 14 og bæta metið. Þetta er samt mjög gaman," sagði Hallgrímur við Fótbolta.net í dag.

„Í síðasta leiknum bjó maður til einhver færi en það kemur bara tímabil eftir þetta tímabil."
KA endaði í sjöunda sæti Bestu deildarinnar, komst í bikarúrslit og gerði ágætlega í Evrópukeppni. Hvernig horfir tímabilið við Hallgrími?
„Þetta var allt í lagi. Það er ýmislegt sem maður er sáttur við en það eru vonbrigði að vera í neðri hlutanum í deildinni og ná ekki þeim markmiðum sem við ætluðum okkur þar. En heilt yfir var þetta fínt tímabil."
Hallgrímur jafnaði stoðsendingametið, en hann sló annað met í sumar. Grímsi, eins og hann er kallaður, er núna sá leikmaður sem hefur leikið flesta leiki samfleytt fyrir eitt félag í efstu deild, án þess að missa úr leik. Hann lék sinn 155. leik í fyrir KA í sumar og sló þar með 40 ára gamalt met.
„Ég veit það ekki sko," sagði Grímsi þegar hann var spurður að því hvernig hann hefði farið að þessu. „Ég hef alltaf verið mjög heppinn að sleppa við meiðsli og í rauninni aldrei meiðst. Vonandi heldur það áfram. Ég vil tala sem minnst um það svo við 'jinxum' það ekki," sagði hann léttur. „Vonandi næ ég að bæta enn fleiri leikjum við."
Hægt er að sjá allt viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan.