Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 23. nóvember 2020 23:47
Brynjar Ingi Erluson
Kessie missti tönn eftir olnboga frá Politano
Franck Kessie eftir olnbogaskotið gegn Napoli
Franck Kessie eftir olnbogaskotið gegn Napoli
Mynd: Getty Images
Franck Kessie, miðjumaður AC Milan á Ítalíu, missti tönn eftir að hafa fengið olnbogaskot frá Matteo Politano í 3-1 sigrinum á Napoli í gær.

Zlatan Ibrahimovic skoraði tvö í leiknum gegn Napoli og þá bætti Jens Petter Hauge við þriðja markinu undir lokin.

Kessie spilaði á miðjunni í leiknum en hann fékk hressilegt olnbogaskot frá Politano í fyrri hálfleiknum.

Samkvæmt Milan TV missti Kessie tönn við þessi viðskipti og þurfti læknalið að huga að honum. Hann kláraði hins vegar leikinn og fór síðan til tannlæknis daginn eftir til að gera við tönnina.

Kessie hefur spilað 14 leiki og skorað 2 mörk í öllum keppnum með Milan á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner