Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 23. nóvember 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Íslensk félagslið fá tæpar 20 milljónir þökk sé Blikakonum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ er búið að tilkynna samstöðugreiðslur vegna þátttöku íslenskra félagsliða í Meistaradeild Evrópu kvenna í fyrra. 

Þau átta efstudeildarfélög sem komust ekki í Meistaradeildina fá greiddar um 2,3 milljónir króna hvert þökk sé Breiðabliki sem komst í riðlakeppnina síðasta haust. Upphæðin sem félögin fá miðast við besta árangur liðs frá sama landi í keppninni.

„Greiðslurnar eru eyrnamerktar þróun kvennaknattspyrnu hjá félögunum. Félögin skulu nota greiðsluna til að fullmóta eða bæta eitt eða fleiri atriði á listanum hér að neðan," segir á vefsíðu KSÍ.

Þau félög sem enduðu í 3.-10. sæti Bestu deildarinnar í fyrra eiga því rúmlega tvær milljónir króna inni hvert.

Fylkir og Tindastóll eru til að mynda meðal félaga sem eiga inni upphæð hjá knattspyrnuyfirvöldum.


Athugasemdir
banner
banner