Fotbolti.net
24.01.21 - 19:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

FA-bikarinn ekki keppnin hans Klopp

Jurgen Klopp.

Jurgen Klopp.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool er úr leik í enska FA-bikarnum. Liðið tapaði gegn erkifjendum sínum í Manchester United í kvöld.

Leikurinn var mjög fjörugur, annað en leikurinn um síðustu helgi þegar liðin mættust í deildinni. Mohamed Salah skoraði tvisvar fyrir Liverpool en United vann leikinn 3-2.
Klopp hefur unnið ensku úrvalsdeildina, Meistaradeildina og HM félagsliða sem stjóri Liverpool en svo virðist sem FA-bikarinn sé ekki alveg hans keppni.

Hann hefur aldrei komist lengra en í fimmtu umferð, 16-liða úrslitin. Leikurinn í kvöld var í 32-liða úrslitunum, fjórðu umferðinni.

Undir hans stjórn hefur Liverpool fjórum sinnum dottið út úr bikarnum í fjórðu umferð, einu sinni í þriðju umferð og einu sinni í fimmtu umferð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.