Gylfi Þór Sigurðsson átti flottan leik fyrir Everton þegar liðið vann sannfærandi 3-0 sigur á Sheffield Wednesday í ensku bikarkeppninni í kvöld.
Gylfi spilaði allan leikinn og fær hann sömu einkunn hjá Liverpool Echo og Sky Sports, 7.
Í umsögn Liverpool Echo um frammistöðu hans segir: „Átti frábærar sendingar á síðasta þriðjungnum, skapaði færi og skoraði næstum því sjálfur í fyrri hálfleiknum."
Hér að neðan má sjá einkunnagjöf Sky Sports í heild sinni.
Everton: Olsen (7), Coleman (7), Holgate (7), Mina (8), Godfrey (7), Doucoure (7), Gomes (7), Sigurdsson (7), Rodriguez (8), Richarlison (8), Calvert-Lewin (8)
Varamenn: Kenny (N/A), Bernard (N/A), Small (N/A), Gordon (N/A), Onyango (N/A)
Sheffield Wednesday: Wildsmith (6), Urhoghide (6), Brennan (7), Borner (6), Galvin (6), Harris (7), Bannan (6), Pelupessy (6), Reach (6), Green (6), Paterson (5)
Varamenn: Windass (6), Marriot (N/A), Brown (N/A), Dele-Bashiri (N/A), Penney (N/A)
Maður leiksins: Dominic Calvert-Lewin
Athugasemdir