Steven Gerrard mun ekki taka við pólska landsliðinu en fótboltasamband Póllands hefur ákveðið að ráða annan mann í starfið.
Enskir miðlar greindu frá því að pólska sambandið væri í viðræðum við Gerrard um að taka við landsliðinu eftir að Czeslaw Michniewicz hætti með liðið eftir HM í Katar.
Beðið var eftir ákvörðun Gerrard en hann mun ekki taka við landsliðinu eftir allt saman.
Portúgalski þjálfarinn Fernando Santos tók við landsliðinu í gær og mun því stýra því næstu árin.
Santos tók við portúgalska landsliðinu árið 2014 en var látinn fara eftir HM í Katar.
Athugasemdir