Hughton rekinn úr starfi hjá Gana (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Chris Hughton hefur verið rekinn sem landsliðsþjálfari Gana eftir slæman árangur liðsins á Afríkumótinu.

TENGT EFNI
Lífverðir fylgja Hughton vegna reiði stuðningsmanna
Gana endaði aðeins með tvö stig í B-Riðli en liðið gerði jafntefli gegn Egyptalandi og Mosambík og tapaði gegn Grænhöfðaeyjum í fyrstu umferð.
Gana vonaðist til að komast áfram sem eitt af bestu liðunum í 3. sæti en þær vonir urðu að engu eftir úrslit gærdagsins.
Hughton var aðeins tæpt ár í starfi þar sem hann var ráðinn í febrúar í fyrra.





