12:12Formlegri athöfn er lokið en við munum halda áfram að fjalla um þetta nýja vörumerki á deildinni á síðunni í dag.
Takk fyrir að fylgjast með þessari lýsingu!
12:09Eitt Sett, Steypustöðin og Lengjan eru núna þrír aðalstyrktaraðilar deildanna.
12:07Nýr bikar fyrir deildina! Það er skjöldur sem Íslandsmeistararnir 2022 fá.

12:05Björn segir að það hafi verið flókið verk að finna nafn á deildina. Besta deildin skilst vel á mörgum erlendum tungumálum og það hjálpi til.
12:00
Björn Þór er að fara yfir vinnuna í kringum nýtt vörumerki íslenska boltans. Mikil vinna sem fór í þetta og talað við fjölmarga.
11:55BESTA DEILDIN
Nýtt nafn á efstu deildirnar (Staðfest)
11:52Björn Þór Ingason markaðsstjóri ÍTF kynnir myndband þar sem nýtt nafn á deildunum verður afhjúpað.
11:51Vanda með veiruna
Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ greindist með Covid í morgun og er því ekki viðstödd. Orri skilar kveðju frá formanninum. Þetta smit setur væntanlega einhvern strik í reikninginn í baráttu hennar fyrir ársþingið.
11:49
Orri Hlöðversson, formaður ÍTF, opnar samkomuna og talar um hversu stór áfangi þetta sé fyrir íslenskan fótbolta. ÍTF hefur verið á ýmsum fundum varðandi réttindamál að íslenska boltanum. Samningar hafa verið gerðir sem hafa talsverð áhrif á fjárhagsumhverfið í boltanum.
11:44Jæja salurinn er opinn og þá fer formleg dagskrá að hefjast...
11:32
Fólk er ekkert að flýta sér of mikið, salurinn er enn lokaður. Nóg að ræða enda ársþing framundan.
11:23Það er létt yfir mönnum í fordrykknum í hinu glæsilega Bæjarbíói. Hinn umtalaði Jón Rúnar mættur og spjallar við fólk. Veitingar og hátíðarbragur á þessu öllu saman.
10:46Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF og Þórir Hákonarson íþróttastjóri og sérfræðingur mættu í útvarpsþáttinn Fótbolti.net síðasta laugardag. Rætt var um nýja samninga í íslenska boltanum, peningastreymi og komandi ársþing.
10:42Besta deildin?
Sú saga hefur verið í gangi að 'Besta deildin' verði nýja nafnið á deildinni. Eitthvað sem maður hefur heyrt úr ýmsum áttum. Íslandsdeildin er nafn sem hefur verið í umræðunni en lendingin virðist vera 'Besta deildin'.
Staðfesting á því ætti að detta inn rétt á eftir...
10:30Nýtt keppnisfyrirkomulag í karlaflokki með fjölgun leikja
Tvískipt deild og 27 leikir á lið - Í nýju keppnisfyrirkomulagi, sem verður að öllum líkindum samþykkt á ársþingi um helgina, verður fjölgun leikja í karladeildinni en áfram tólf lið. Það má kalla þetta "dönsku leiðina" en þetta er nánast sama fyrirkomulag og er í Superliga.
- Liðin byrja að mætast heima og að heiman í hefðbundnu fyrirkomulagi en þegar þeim 22 umferðum er lokið verður deildin tvískipt. Sex efstu liðin mætast aftur innbyrðis í efri deild og sex neðstu liðin í neðri deild.
- Liðin byrja þó alls ekki á núlli því þau taka með sér stigin áfram. Þegar deildinni hefur verið tvískipt er svo leikin einföld umferð og því bætast við fimm leikir á hvert lið, alls 27 leikir.
Hvaða lið hefðu farið í efri deildina?
Ef við miðum bara við síðasta tímabil þá hefðu Víkingur (48 stig), Breiðablik (47), KR (41), KA (40), Valur (39) og FH (33) farið í efri deildina og mæst aftur innbyrðis, alls fimm umferðir.
Stjarnan, Leiknir, ÍA, Keflavík, HK og Fylkir hefðu svo mæst í neðri deildinni. Þetta fyrirkomulag gefur fleiri leiki innbyrðis í topp- og líka í fallbaráttunni og ætti því að auka líkurnar á spennandi lokakafla.
10:20Góðan og gleðilegan dag!
Það er spenna í lofti enda er verið að fara að kynna nýtt vörumerki og nafn á efstu deildum karla og kvenna. Kynningarfundurinn hefst klukkan 11:30 og við fylgjumst með öllu saman í þessari beinu textalýsingu.
Staðurinn er Bæjarbíó í Hafnarfirði. Hafliði Breiðfjörð verður með myndavélina á lofti og Sæbjörn Steinke talar við fólk.
Dagskráin verður eftirfarandi:
Vörumerkið afhjúpað með kynningarmyndbandi.
Markaðsstjóri ÍTF fer yfir þá undirbúningsvinnu sem ráðist var í og tilurð vörumerkisins.
Brandenburg fer yfir hönnun merkis og myndheims.