Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. febrúar 2023 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Marcelo semur við uppeldisfélagið (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marcelo er búinn að finna sér nýtt félag eftir að hafa rift samningi sínum við Olympiakos á dögunum.


Þessi 34 ára gamli Brasilíumaður er kominn heim. Hann hefur skrifað undir samning við Fluminense en hann er alinn upp hjá félaginu.

Hann lék 30 leiki með félaginu á sínum tíma áður en hann samdi við Real Madrid þar sem hann lék 546 leiki. Þar vann hann spænsku deildina sex sinnum og Meistaradeildina fimm sinnum.

Hann yfirgaf félagið síðasta sumar eftir 15 ára dvöl. Hann samdi við Olympiakos en lék aðeins 10 leiki áður en samningnum var rift.


Athugasemdir
banner
banner
banner