Ísland tapaði 3-0 gegn Bosníu í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2024 í gær. Afar svekkjandi úrslit en frammistaða íslenska liðsins var vægast sagt léleg.
Lestu um leikinn: Bosnía og Hersegóvína 3 - 0 Ísland
Amar Dedic, leikmaður Red Bull Salzburg í Austurríki, fór illa með íslenska liðið trekk í trekk en hann skoraði þriðja mark Bosníu í leiknum.
Hann fékk allan tímann í heiminum áður en hann setti boltann í markið. Kári Árnason, einn besti varnarmaður í sögu landsliðsins, var sérfræðingur á Viaplay í gær en hann sagði að þriðja markið hefði verið sjokkerandi að sjá.
„Þetta er sjokkerandi mark að sjá sig," sagði Kári en varnarleikur liðsins í markinu var hörmulegur.
„Við erum margir á þessu svæði en allt í einu hleypur Hákon nánast úr framherjastöðunni til þess að koma með einhvers konar hjálparvörn, sem er að vísu skelfileg í þessu tilfelli og ekki boðleg. Fyrirgefðu Hákon, ég veit að þú ert ungur og allt það, en þetta er ekki boðleg hjálparvörn á þessu stigi. Þetta er ekki í boði."
Hákon er aðeins 19 ára gamall en hann átti alls ekki góðan leik í gær. Kári bætti við að Hákon hefði ekkert átt að vera á þessu svæði, skipulagið í varnarleiknum hafi verið mjög vont að sjá. Arnór Ingvi Traustason hafi til dæmis verið í mjög skrítnu svæði þarna.
Hægt er að sjá markið hjá Dedic með því að smella hérna.
Sjá einnig:
„Þetta eru íslenskir alvöru karlmenn sem eiga stundum skilið að láta hrauna yfir sig"
Athugasemdir