Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. mars 2023 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu öll 54 landsliðsmörk Kane - „Undursamlegt afrek"
Mynd: Getty Images
Harry Kane varð í gær markahæsti leikmaður enska landsliðsins frá upphafi er hann gerði annað mark liðsins í 2-1 sigri á Ítalíu í undankeppni Evrópumótsins.

Kane og Wayne Rooney voru jafnir með 53 mörk fyrir leikinn í gær en Kane bætti metið undir lok fyrri hálfleiks með marki úr vítaspyrnu.

Fyrirliðinn er nú með 54 mörk og gerði hann það í aðeins 81 leik á meðan Rooney gerði 53 mörk í 120 leikjum.

Enska fótboltasambandið birti myndband á Youtube þar sem má sjá öll 54 mörk Kane fyrir landsliðið.




Athugasemdir
banner
banner
banner