Gústi Gylfa: 'Professional' frammistaða að mínu viti


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ágúst Gylfason þjálfari Stjörnunnar var ánægður með sína menn eftir að þeir unnu 3-0 útisigur gegn Leikni í dag.
Ágúst var tekinn í viðtal eftir leik og hafði þetta að segja.
„Fyrst og fremst frábær frammistaða að spila hérna á gríðarlega erfiðum útivelli sem fá lið taka eitthvað út úr en við fengum mark hérna fljótlega í leiknum úr víti. Leiknismennirnir þótti mér vera mjög öflugir í fyrri hálfleik og settu soldið pressu á okkur en við skoruðum úr einni góðri skyndisókn sem var virkilega vel útfærð að okkar hálfu og leiddum 2-0 í hálfleik sem var mjög kærkomið. Við vissum það að þeir myndu koma dýrvitlausir í seinni hálfleik eins og þeir gerðu en við náðum að slútta þessu of fá góðan seinni hálfleik. Prófessional frammistaða af mínu viti og það var bara gott balance og góð liðsheild í dag. "
Þú gerðir þrjár breytingar á liðinu frá síðasta leik, þær heppnuðust vel?
„Já þær heppnuðust vel, fengum ferskar lappir inn og þeir stóðu sig vel, svo komu nokkrir inn á sem voru á bekknum í dag. Við gerðum 5 skiptingar og frammistaðan góð hjá öllu liðinu. "
Þið voruð hættulegir úr skyndisóknum, var það uppleggið?
„Ekkert endilega. Við ætluðum nú að stýra leiknum betur en Leiknis liðið er bara það gott, þeir eru góðir á boltan og geta haldið honum vel. Þeir settu dálítið á okkur þrátt fyrir að þeir sköpuðu sér ekkert svaka góð færi. Við náðum einni góðri skyndisókn í fyrri hálfleiknum sem var virkilega vel útfærð og komumst þægilega í 2-0. Svo í seinni hálfleik þá var þetta þannig að eftir að Leiknismenn urðu einum færri þá lágum við aðeins til baka og beittum góðum skyndisóknum, skoruðum einhver mörk líka sem voru dæmd af en heilt yfir góð frammistaða hjá okkur og virkilega ánægður með að taka þrjú stig úr Breiðholtinu."
4 punktar eftir fyrstu tvo leikina, mótið byrjar vel.
„Já það er alltaf gott að fá sigur og sérstaklega hér í Breiðholtinu en nú þurfum við að fara hugsa um næsta leik sem er í Víkinni þannig að það verður hörku viðureign."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.




